miðvikudagur, ágúst 31, 2005

Heimaverkefni fyrir íslenskutímann í dag var að semja níð um kennarann eða sessunaut. Þar sem ég þekki ekki ennþá sálu af þessum ´87 módelum samdi ég nokkra níði um íslenskukennarann minn, hann Braga.

Orð í biðum beljandi,
Bragi tyggur kveljandi.
Grár og gugginn,
eins og skugginn,
gáfur sínar seljandi
-
Kaldhæðinn með kerski slæma,
kennir ekki mikið
í vinnunni við mál að dæma,
reykir fyrir vikið
-
Vindþurrkaður málfræðingur
vesenast í villum.
Vel uppalinn MR-ingur,
venst þó vel hans kvilumm

Bragarbótin bannsett er,
betra er hjá bjánum.
Býst ei við að batni hér
hjá Bögubósakjánum.

Og þar með hefur fæðst nýtt áhugamál hjá mér.

2 Ummæli:

Blogger Spookyo_O sagði...

VÁ! þetta er snilldar ljóð, skemmtilegur hrynjandi, ég get ekki alveg skilgreint bragháttinn en það er af því að Haffi er Tossi :P en ógeðslega skemmtilegt :D

2:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

frábært! -Dagrún

2:50 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim